Huldu blogg

Allt á huldu

20.02.2008 22:12:54 / huldab

Þetta

djö.....&$%&$#&(%/(&(/()()=)=)($&$#"! blogg er að gera út af við mig svo ég verð hérna ef þið viljið finna mig

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 17:55:55 / huldab

Konur eldast

Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldast verður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þær voru ungar. Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana. Sumar konur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona. Ég heiti Jón. Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þetta ástand varðandi konuna mína – hana Siggu. Þegar ég settist í helgan stein fyrir nokkrum árum, þurfti Sigga auðvitað að fá sér heildagsvinnu meðfram hlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaði okkar hjóna gangandi. Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftir að aldurinn fór að sjást á henni.

Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni. Þó hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig í hálftíma áður en hún fer að
elda matinn. Ég æpi þó ekki á hana. Í staðinn segi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegar maturinn er kominn á borðið. Ég borða venjulega hádegismat í “Heiðursmannagrillinu” í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert á dagskránni að fara út að borða.
Áður fyrr var Sigga vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða. Nú er hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég geri það sem ég get með því að minna hana á það á nærgætinn hátt að diskarnir þvoi sig ekki sjálfir. Ég veit að hún kann að meta þetta, þar sem það virðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að sofa.

Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur hún því fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana í matartímanum. En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og stríðu, svo ég brosi bara og býð fram hvatningu. Ég segi henni bara að dreifa þessu á tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins mikið. Ég minni hana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé það allt í lagi ( þið vitið hvað ég meina ). Mér finnst reyndar nærgætni einn af mínum betri kostum. Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún þurfi fleiri hvíldarstundir. Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var einungis hálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. Ég er sanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af nýpressuðum köldum appelsínusafa og setjast í smástund. Og þar sem hún er að
gera þetta, bið ég hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni.

Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig ég styð hana Siggu mína. Það er ekkert auðvelt að sýna svona mikla tillitssemi. Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst það alveg ómögulegt ! Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verða þegar þær eldast. En strákar, ef þið hafið lært það af þessarri grein að vera nærgætnari og minna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast – lít ég svo á að þetta hafi verið þess virði að setja á blað. Við megum ekki gleyma því að við fæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum. Kveðja,
Jón Jónsson

Athugasemd ritstjóra:

Jón Jónsson lést skyndilega þann 27. maí sl. af blæðingum í endaþarmi. Samkvæmt lögregluskýrslu fannst Calloway extra löng 50 tommu Big Bertha golfkylfa á kafi í rassgatinu á honum, þannig að aðeins stóðu tíu cm af handfanginu út, og við hliðina var sleggja.

Sigríður konan hans var handtekin og ákærð fyrir morðið. Kviðdómurinn sem eingöngu var skipaður konum var 15 mínútur að komast að niðurstöðu sem var þessi: Við föllumst á það sem fram kemur í vörn Sigríðar að Jón hafi einhvern veginn, án þess að
gera sér grein fyrir því, sest ofan á eigin golfkylfu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 23:13:37 / huldab

Tvær fyrir eina

Bloggsíðan bara búin að vera í klössum hjá vefhýsum og lítið sem ekkert hægt að blogga jú og svo var náttúrulega var bloggarinn sjálfur með flensu :$
Var svo "heppin" að fá tvær fyrir eina :lol: geri aðrir betur :haha: en ég held ég sé að jafna mig :d
Um síðustu helgi fengum við yndislega unga næturgesti ;) ömmusys var treyst fyrir tveimur gullmolum og komu systkinin í Auðsholti (þau áttu að gista hjá ömmunni í Mosó en vegna veðurs þá fóru þau ekki lengra en í Hveró) og það er nú ekki á hverjum degi sem svona ungar koma í heimsókn og hvað þá til þess að gista þannig hér fengu þau EXTRA mikla þjónustu hjá okkur fimm :) Svo það er ekki allt alslæmt við þessa færð sem búin er að vera hér hjá okkur :d
Gulldrengurinn er á körfuboltamóti þessa helgi, fyrri dagurinn í dag og ekki gekk alveg sem skyldi :$ en þrír leikir á morgun og við vonum bara það besta ;)
Klaufdýrið fór eldsnemma í morgun inn í Landmannahelli með beltabifhjólið, litli bró kom og sótti hann á  jeppanum sínum en ekki gekk allt sem skyldi hjá honum (sko litla bróanum mínum) þannig kalufdýrið tætti á sleðanum yfir vatnsflauminn inn í helli og litli bró sneri við heldur blautur bæði bíll og maður :$ Það var sem sagt meiri krapi en þeir gerðu ráð fyrir, en sem betur fer fór allt vel :haha:
Jæja hvernig væri að líta í námsbækur :$ dagatalið mitt segir í dag fyrir 16.febrúar.
Haltu þig við vinnuna þó illa gangi. Þegar þú átt sem erfiðast máttu ekki gefast upp !!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 10:31:48 / huldab

Skuggalegar skruggur

 og klaufdýrið bjargaði Hveragerði að eigin sögn ásamt hinum neyðarköllunum :$
Hér í gærkvöldi logaði himininn af eldingum :$ mér var hugsað til mömmu minnar sem kallaði þetta alltaf skruggur 8| og hún var skíthrædd við þær :lol: og er enn, því ég talaði við hana í morgun og henni leið ekki vel í gærkveldi, aumingja mamma mín. En það bætti úr að hún fékk þrjá engla fljúgandi inn um dyrnar í gærkveldi :!: Þeir komu að norðan fjúkandi í veðurhamnum í orðsins fyllstu :)
En klaufdýrið mitt er búið að vera á fullu og ekki hefur beltabifhjólið (vélsleðin) komið sér illa í öllum þessum snjó ;) Hann er búin að bjarga fólki af heiðinni og flytja fólk heim sem var veðurteppt í henni Reykjavíkinni og þar á meðal sinni eigin tengdamóðir ;) henni til mikillar gleði :D Hemja þök og tré og moka úr niðurföllum ;)
Þetta eru hetjur liðinar viku GOGO NEYÐARKALLAR :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 20:48:15 / huldab

Búin að

 fara í hárkollu-fertugsafmæli (rafvirkinn með skalla-kollu)

 

og hatta fertugsafmæli (með tengdó;)

og búin að að læra helling og veit til dæmis núna hvað MANNLINGUR þýðir !!!!!!!! Og þið getið ímyndað ykkur hvað mér líður vel með það :$ EN VEIST ÞÚ HVAÐ ÞAÐ ER ?

Svo er ég búin að skafa bílinn og skafa bílinn og skafa bílinn :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 10:21:16 / huldab

Vetur konungur í Færeyjum

Vinir mínir í Færeyjum hafa heldur betur fengið að finna fyrir vetri konungi síðustu daga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 17:21:19 / huldab

Þakka allar tölvupóstsendingarnar

Nú þegar árið 2007 hefur runnið sitt skeið, langar mig að nýta tækifærið
og
þakka fyrir alla tölvupóstsendingarnar sem ég hef fengið frá ykkur. Ég verð að segja að lífsgæði mín hafa aukist til muna við sendingarnar.
Takk til þess (hver sem það nú var) sem sendi mér upplýsingarnar upp að
það
hefði í mörgum tilfellum fundist rottuskítur í límröndinni á umslögum.
Þær
dýrmætu upplýsingar leiddu til þess að ég nota nú votan klút í hvert
skipti sem ég þarf að loka umslagi. Af sömu ástæðu finn ég mig nú knúna
til
að þvo hverja dós sem ég þarf að opna.

Í dag á ég heldur ekkert sparifé, þar sem ég hef sent það allt til litlu
veiku stúlkunnar (Penny Brown) sem er akkúrat núna í andaslitrunum á
sjúkrahúsinu í 1.387.258 skiptið.
Ég á í rauninni enga peninga lengur
en það mun náttúrulega breytast um
leið og ég fæ 500.000 $ sem Microsoft ætlar að senda mér fyrir að hafa
verið
exclusivur þáttakandi í e-mail prógramminu þeirra. Ég á líka von á aur frá miðaldra getulausum bankastarfsmanni frá Nígeríu sem hefur lofað að deilda 7 milljónum $ með mér. Aur sem hann erfði eftir að gleymdur ættingi hans lést í skelfilegu umferðarslysi í höfuðborginni Abuja. Yndislegur maður hann Ade Oluwa alveg sérstök sál.
Sem betur fer þarf ég ekki að óttast um sál mina, þar sem ég er blessuð
með
363.214 englum sem passa mig og vakta sérhvert spor mitt og St. Helena
hefur líka boðist til að uppfylla allar mínar óskir.

Mig langaði bara að segja ykkur frá því að ég nota ekki lengur
krabbameinsvaldandi svitalyktaeyði, þrátt fyrir að ég lykti illa af svita
á
heitum sumardegi. Ég er alveg hætt því!

Takk fyrir að sýna mér og kenna að óskir mínar muni aldrei verða
uppfylltar
nema ég áframsendi tölvupóstana mina til amk 7 einstaklinga á innan við 5 mínútum.
Ég vil einnig þakka ykkur fyrir að hjálpa mér með að hætta að drekka Coca
Cola, og upplýsa mig um að það megi hreinlega fjarlægja kalkúrfellingar
úr
salernum með því.

Ég set aldrei lengur bensín á bílinn hjá Olís án þess að vera vakandi
fyrir
því að pólskur fjöldamorðingi sem komist hefur ólöglega inn í landið,
gæti
mögulega hafa laumað sér á í aftursætið meðan ég fylli tankinn.
Ég svara ekki lengur neinum sms-um, þar sem það kostar mig 25.000 kr. að
svara ákveðnum númerum.
Fyrir tilstuðlan vingjarnlegar ráðlegginga, get ég nú ekki lengur leyft
mér
að beygja mig eftir krónu sem liggur á götunni, þar sem það liggur
eflaust
kolóður kynferðisglæpamaður undir bílnum og bíður þess að geta gripið í
fæturna á mér og dregið mig til sín og nauðgað mér.

Ef þú sendir ekki þennan tölvupóst til amk 144.000 einstaklinga á næstu
70
mínútum, þá mun risavaxin dúfa með svæsin niðurgang lenda á höfðinu á þér
kl 17 nú í dag og flær úr 12 mongólskum kamedýrum munu skríða inn í bakið
á
þér og orsaka að rassinn á þér verður allur kafloðinn.

Og svo langar mig bara líka að deila því með ykkur að Suðuramerískur
vísindastúdent sem ég þekki hefur eftir langar og strangar rannsóknir
uppgötvað að aðeins einstaklingar með lága greindarvísitölu, sem stunda
lítið kynlíf eru manneskjurnar sem alltaf lesa alla tölvupósta með
höndina
á músinni.

Lifið svo innilega heil.
 

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 20:56:55 / huldab

Klaufdýrið komið í Klettahlíðina

Búin að vera baksast við að flytja í gær og í dag með hjálp góðra vina :)

En hann er nú ekki klaufdýr fyrir ekki neitt :$ Og í kvöld þegar hann og vinur hans komu til að setja rúmið saman, vildi ekki betur til en það hann henti járnstykkinu af rúminu í ennið á vini sínum 8|

Rafvrikinn fór með vininn á Selfoss sem er að verða tvítugur og aldrei verið saumaður áður 8|

Þeir voru að koma heim og það þurfti að sauma vininn nokkur spor í ennið, en það besta við það að doktor Mr. Been (einn sem var með okkur í fertugs afmæli í gær nota bene í Rvk. og okkur hjónum fannst hann líta út eins og Mr. Been)

Svona er Ísland lítið :haha: En vinurinn ber sig vel :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 14:31:31 / huldab

Þetta er kellinginn í Klettahlíðinni

sem talar enn eina ferðina :frown:

Síðan ég byrjaði að blogga í september 2005 hef ég svona sirka einu sinni í mánuði haft eitthvað að segja um götuna mína 8| Og því miður er það helst eitthvað neikvætt  :frown: En það er ekki að ástæðulausu og nú er svo komið að ég er búin að gera myndaalbúm á síðunni sem heitir Klettahlíð og þar ætla ég að sýna ykkur um hvað ég er alltaf að tala 8| Vonandi á bæjarstjórinn eftir að ramba hérna inn og sér þá kannski að þetta er ekki eintómt "KERLINGAVÆL ÚR KLETTAHLÍÐNNI"

Svona er gatan í dag (fleiri myndir í albúmi)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 23:32:27 / huldab

Furðulegur föstudagur hjá kellunni í Klettahlíðinni

sérstakleg vegna þess að hér hjá okkur í Hveragerði var ekkert að veðrinu. En þó þurfti ekki nema að fara rétt upp í Kamba til að átta sig á hvað væri í gangi hinum megin við heiðina 8|

Svo þegar ég kom heim úr vinnuni lét ég vörubílinn og gröfuna í götunni smá pirra mig þó sérstakleg vegna þess að þeir höfðu ekki verið hreyfðir í dag og stendur ekki til þess ða hreyfa þá (sko í vinnu) um helgina :frown: Samt loka þeir nánast götunni :!:

Þar sem klaufdýrið mitt er að flytja heim á morgun :haha::haha: sá ég mig knúna til þess að hringja og kvarta 8|

Ég er ekki vön að kvarta en fékk samband við æstráðanda hjá bænum og símtalið var á þessa leið: 

Jón bæjó: Halló

Ég: Þetta er kerlingin í Klettahlíðinni og ég þarf að kvarta

Jón bæjó: já ert þetta þú (nota bene hér þekkist fólk ennþá;)

Ég: legg fram kvörtun mína og útskýri mitt mál fyrir honum

Jón bæjó: Nú er drengurinn að flytja heim ???

Ég: Já "live is hard og mamma er best" og tengdadóttirin kemur líka :)

Jón bæjó: Já þetta er mjög slæmt svo ég tali nú ekki um ef það fer að snjóa meira þá er þetta ekki gott. Ég skal hringja í "kauða" og biðja hann að færa bílana. Nú og drengurinn verður að komast HEIM.

Ég: Alveg yfir mig glöð að hafa kvartað og það sé tekið svona vel í kvörtun mína ;) Bíð spennt eftir að sjá "kauða" koma og færa bílana.

Klukkan er 23.30 og enn standa bílarnir í götunni 8|8|8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 14:52:19 / huldab

Lífsins bergmál

Feðgar voru í göngu upp í fjöllum.
Allt  í einu, dettur sonurinn og meiðir sig og öskrar: "AAAhhhhhhhhhhh!!!"
Hann verður voða hissa þegar hann heyrir rödd einhvers staðar í fjöllunum svara sér: "AAAhhhhhhhhhhh!!!"

Af forvitni öskrar hann til baka: "Hver er ertu?"
Honum er svarað: "Hver ertu?" Hann öskrar: "Hver ertu?" Honum er svarað: "Hver ertu?"
Sonurinn er orðinn pirraður og svarar:  "Heigull!"
Honum er þá svarað: "Heigull!"

Sonurinn horfir á föður sinn og spyr: "Hvað er að gerast ?"
Faðirinn brosir og segir og taktu nú vel eftir:

Faðirinn öskrar upp til fjallana:  "Ég dáist að þér!"
Hann fær svar: "Ég dáist að þér!"

Aftur öskrar faðirinn: "Þú ert meistari!"
Honum er svarað um hæl: "Þú ert meistari!"

Sonurinn er hissa, en skilur ekki hvað er um að vera.
Faðirinn útskýrir: Fólk kallar þetta bergmál, en í raun er þetta lífið sjálft.

Lífið gefur til baka allt sem þú segir og gerir.
Lífið endurspeglar gjörðir okkar.
Ef þú vilt meiri kærleik í heiminn í dag, byggðu upp meiri kærleik í hjarta þínu.
Ef þú vilt bæta lið þitt, bættu þig.  

Þessi tenging á við um alla hluti lífsins.

Þú uppskerð það sem þú sáir.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 16:54:17 / huldab

Búið að moka

Klettahlíðina ;) en var gert í dag á meðan ég var í vinnunni ;)

Fallega dagatalið mitt segir í dag:

Látið fortíðina eiga sig, hún er gleymd og grafin.

Lifið í heimi framtíðarinnar sem er raunverulegur og fullur af tækifærum.

Og það ætla ég að gera :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 16:47:32 / huldab

Pirruð

vægast sagt í dag :whut:

Þegar ég fór út í morgun að "skutla" gulldrengnum í skólann og mér í vinnuna, þá þakkaði ég mínu sæla að vera á "slyddujeppa með 4 drif" annars hefði ég mátt dúsa hér í Klettahlíðinni í dag :whut: En eins og ég hef sagt ykkur er ég ein þeirra hér í bæ sem getað mokað götur bæjarins betur og skipulagðar en allir sem þar starfa 8|8|8| Jú allt í lagi að það sé ekki allt orðið greiðfært fyrir klukkan 8 á morgnanna, ég get sætt mig við það :$

EN KLUKKAN FJÖGUR hefur ekki svo mikið sem skófla verið munduð hér í Klettahlíðinni (né Laufskógum) og ekki bætir að verið er að vinna í götunni 8| sem er lokuð í miðju og kostar mig krók í hvert skipti sem ég þarf að bregða mér af bæ :whut: og auðvitað að fara Laufskógana 8|8| Og þar sem stórir vörubílar aka hér fram og til baka eru það þeirra för sem ráða 8|8|

Ekki nóg með það heldur eru Íslendingar að skíta á sig í handboltanum og Reykvíkingar eru með sandkassabörn í borgarstjórn (held samt að þau stæðu sig mun betur en þeir sem þar eru) og allir veikir í vinnunni :whut::whut:

Dagatalið mitt segir í dag: Best er að láta það sem er mikilvægast ganga fyrir.

HELD AÐ ENGIN HAFI GERT ÞAÐ Í DAG :!::!::!:


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 21:35:10 / huldab

Fjöruga, fallega fólkið fertugt

Hvað eru mörg EFF í því ???

Það er sko engin ládeyða framundan 8) því nú hrannast inn boðskort í fertugsafmælin hjá fjöruga og fallega fólkinu í árgang 1968 :haha: Sko ég vissi að ég þyrfti ekki að halda upp á mitt vegna þess að ég ætti svo hressa vini sem myndu ekki vara í vandræðum með að slá upp veislu svo ég tali nú ekki um alls kyns þema ;)

Nú þarf ég að fara hafa mig alla við að finna hatta, hárkollur, sólgleraugu 8) og eldrauðan varalit 8| því afmælisboðin sem framundan eru mælast til þess að maður mæti með eitthvað þessháttar 8|8|

Er farin að halda að vinir mínir séu eitthvað hræddir um að aldurinn skíni úr andlitum okkar, þannig best er að dulbúast og fela sem mest 8|

En ég er farin að hlakka til :haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 22:10:12 / huldab

Einn á dönsku

Þar sem ég veit að þið sem kíkið hér inn eruð öll svo gáfuð og eruð ekki í vandræðum með að skilja þennan :

Jeg var ude at gå med min 4 årige datter!

Hun samlede noget op fra jorden og ville putte det i munden.

Jeg tog det fra hende og bad hende lade være med sådan noget.

"Hvorfor?", spurgte min datter.

"Fordi det har været på jorden. Du ved ikke hvor det har været. Det er sikkert beskidt og fyldt med bakterier", svarede jeg.

Min datter kiggede fuld af beundring på mig og spurgte "Mor, hvor ved du alt det fra???".

"Uh", jeg tænkte hurtigt.... "alle mødre ved den slags ting. Det er med i mor-testen. Man er NØDT til at vide det, ellers får man ikke lov at blive mor"

Vi gik videre i stilhed et par minutter, mens hun tyggede på disse nye oplysninger.

"Åh, nu ved jeg det!, udbrød hun "hvis man ikke klarer mor testen er man nødt til at blive FAR i stedet for!!"

"Lige præcis!", svarede jeg med et stort smil.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan